Að stofna fyrirtæki
Í fyrstu þarf að ákveðan hvers konar rekstrarform á að notast við. Viðskitparáðuneytið er með sérstaka síðu um mismunandi rekstrarform og stofnun félaga. Algengast er að einstaklingar með lítinn rekstur ákveði að reka félagið í eigin nafni og skrá þá vsk. númer hjá Skattstjóranum í Reykjavík (og annars staðar hjá Skattstjóra viðkomandi svæðis).
Ef stofna á félag þarf að finna nafn á félagið, til þess að leita að nafi fyrir félagið er hægt að fara á heimasíðu Ríkisskattstjóra og leita að skráðum nöfnum. Til þess að vera viss er nauðsynlegt að hringja og spyrja hvort nafnið sé skráð.
Það er hægt að finna þá hérna eða hérna. Iðntæknistofnun, HR, og Ax hafa einnig gefið út mjög ítarlegan bækling, hann er að finna hér. Upplýsingar frá Small Buisness Administration frá Bandaríkjastjórn.






