Markaðssetning

Miklu máli skiptir að markaðssetning takist vel til. Markaðssetning er oft ein dýrasti þátturinn þegar kemur að stofnun fyrirtækja og oft hafe menn litla reynslu af því að markaðssetja fyrirtæki.

Nema að þú hafir þeim mun meira af peningum á milli handana til að kaupa ráðgjöf (og þá borgar sig að kaupa hana), þá þarftu að hugsa vel og vandalega hvernig þú getur náð til þess hóps sem þú vilt selja vöruna. Fjölmragar óvenjulegar leiðir eru til þess að ná til þeirra aðila sem þú vilt selja. Hérna verða nefndar nokkar:

  • Stofnaðu blogg – Það kann að hljóma asnalega en ef þú ert vel skrifandi og skýr, þá hjálpar blogg þér að fanga athygli. Í raun er ekki mikið til af góðum texta á íslensku miðað við t.d. ef þú ætlaðir að selja vöruna á erlendan markað. Því getur blog hjálpað þér við að fólk kynnist þér og þeirri vöru sem þú ætlar að selja.

  • Búðu til heimasíðu – heimasíðan þarf ekki að vera sú flottasta í bransanum en það hjálpar einstaklingum að finna þig. Hérna geturðu fundið Ódýra vefhýsingu og byrjað oft fylgir með erlend lén. Þessi fyrirtæki bjóða oft upp á tilbúni vefkerfi svo að það þarf ekki að vera kostnaðarsamt að byrja með vefsíðu.
  • Notaðu smáauglýsignarnar – Smáauglýsingar er ódýr leið til að auglýsa rekstur. Oftast er hægt að fá fyrir nokkra þúsundkalla góða auglýsingu. Kosturinn er sá að þú þarft ekki grafískan hönnuð til að setja upp auglýsinguna fyrir þig.
  • Fáðu þér eigið logo – vörumerki eru tiltölulega ódýr ef þau eru keyft erlendis. Þau gefa frá sér ákveðið traust frá upphafi og sýna að þú sért með alvöru fyrirtæki. Jafnvel þótt þú ætlir bara að stofna lítið fyrirtæki, borgar sig að kaupa merki frá upphafi.
  • Merktu alla vöru – ein besta auglýsingin er að sjá vöruna eða þjónustuna í notun. Ef þú merkir þig ekki er ekki víst að menn átti sig á því að varan sé frá þér. Margar leiðir eru til þess að merkjar vöruna og hún þarf alls ekki að vera dýr. Hérna til hliðar er eitt af þeim fyrirtækjum sem geta prentað vörur fyrir þig erlendis án þess að það kosti of mikið. Þú getur valið á milli þess að nota t.d. póstkort, límmiða eða annað sem gerir það ljóst að varan kemur frá þér.
  • Vertu með nafnspjöld – Nafnspjöld sýna að þú ert með alvöru rekstur. Þegar þú hittir menn eða ferð til þeirra þá hefurðu eitthvað til að rétta mönnum og þeir hafa upplýsingar hvernig á að hafa samband við þig eftir að spjallinu líkur.
  • Vertu óhræddur við að taka upp símann – einn helsti milskilningur manna í viðskiptum er að viðskipti komi bara. Menn þurfa oft að sýna mikla útsjónarsemi og vera óhræddir við að hringja og kynna sig og bjóða þá þjónustu. Þú verð tímanum í fátt betra en að tala við viðskiptavini, jafnvel þótt salan fari ekki í gegn í fyrsta skipti þá skapast tengsl sem síðar er hægt að nota.
  • Skráðu alla mögulega viðskiptavini – Margir nota sérstök kerfi til að halda utan um alla mögulega viðskiptavini og samskipti við þá. Þú þarf þó ekki að gera það í flóknu kerfi, Excel getur alveg dugað ágætlega til að halda utan um viðskiptavini og þá sem eru líklegir til þess að eiga í viðskiptum.
    Share and Enjoy:
    • Print
    • Digg
    • Sphinn
    • del.icio.us
    • Facebook
    • Mixx
    • Google Bookmarks