Vefumsjónarkerfi
Í boði eru fjölmörg ókeypis vefumsjónarkerfi, oft þarftu þó að vinna með þessi umsjónarkerfi og krefjast þau þá smá þekkingar.
Séu einn af þessumvefhýsingum valin bjóða þau upp á foruppsett kerfi undir lið á stjórnborðinu sem heitir fantastico. Litla sem enga þekkingu þarf að hafa á uppsetningunni sjálfri þegar sú leið er farin.
WordPress
WordPress er ætlað sem blogkerfi en ekki sem vefhumsjónarkerfi. Það þýðir að aðlaga þarf kerfið að því að nota það sem vefumsjónarkerfi, en það er gert með því að sækja viðbætir (plugins). Kosturinn við wordpress er að kerfið er eitt stærsta opna vefumsjónarkerfi heims en til eru þúsundir af viðbætum og opnum lausnum. Einnig er til samfélag á Íslandi utan um þetta kerfi, ásamt þýðingu á kerfinu. Auðvelt er að finna ókeypis útlit sem líta fagmannlega út með því að leita á google eða með því að fara í heimasíðu kerfisins
Joomla
Fjölmörg íslensk fyrirtæki hafa staðfært kerfið og selja það. Smá tíma tekur að aðlaga kerfið ef á að nota það án þess að kaupa þjónustu í uppsetningu. Margir notendur eru að kerfinu og hægt er að finna mikið af leiðbeiningum á netinu um hvernig á að nota það.
Typo3
Er gríðarlega öflugt kerfi eins og Joomla krefst það nokkrar þekkingar til þess að staðfæra kerfið og aðlaga það.
Önnur kerfi:
Listinn hér að ofan er fyrir kerfi sem kom uppsett af fantastico, en einnig eru önnur kerfi í boði sem krefjast þá þess að þau séu sett upp. Þetta krefst aukinnar þekkingar, t.d. þarf að flytja skránnar yfir á vefþjónininn, og setja upp gagnagrunn fyrir þau.
CMS made simple
CMS made simple er eitt auðveldasta kerfið sem til er, þegar setja á upp einfalda heimasíðu án þess að hafa mikla þekkingu á heimasíðugerð eða læra að aðlagast að vefumsjónarkerfum. Töluvert er til að íbótum við kerfið. Hægt er að nálgast kerfið hérna