Vefhýsing
Vefhýsing og skráning á íslenskum lénum getur oft verið nokkuð kostnaðarsöm miðað við það sem gengur og gerist erlendis. Auk þess vantar oft upp á auðvelda uppsetningu t.d. bjóða erlendu fyrirtækin t.d. upp á auðvelda stjórnun á tölvupósti, mörg forrit sem sett eru upp með 2 – 3 smellum og mörg lén á einni hýsingu.
Hérna er listi hvernig á að setja upp lén:
- Skráðu lénið hjá isnic.is, hvert lenur kostar 7.918 kr á ári. Einfalt er að stofna lén og frá árinu 2008 er hægt að greiða fyrir það beint á netinu með greiðslukorti.
- Keyptu þér hýsingu hjá einum af þeim mörgu sem bjóða hérna upp á vefhýsingu
- Um leið og hýsingin hefur verið skráð færðu sendar upplýsingar með ip-tölu vefhýsingaraðilans (stendur alltaf í póstinum), þessar upplýsingar geturðu notað frítt DNS hjá 1984.is. Þar er IP – talan sem kemur í tölvupóstinum frá hýsingaraðilanum notuð.
- Að lokum skráirðu þig aftur inn hjá isnic og breytir nafnaþjóni (flytur) hýsingun til nafnaþjóna 1984.






